Quantcast
Channel: mbl|Sjónvarp - 112
Viewing all 106 articles
Browse latest View live

Gengu í lið með lögreglu

$
0
0
Gengu í lið með lögreglu„Það var ákveðinn hópur fólks sem myndaði skjól fyrir lögreglumenn, gekk fram fyrir lögreglumenn og rétti upp hendur og varði lögreglumennina sem voru á staðnum,“ segir Kristján Helgi Þráinsson, varðstjóri hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, um þann atburð þegar mótmælendur gengu í lið með lögreglu.

Voru í lífshættu

$
0
0
Voru í lífshættu Læknir á Landspítalanum sem tók á móti lögreglumanni sem fékk þriggja og hálfs kílós gangstéttarhellu í höfuðið við mótmælin á Austurvelli 21. janúar 2009 sagði augljóst að lögreglumenn hefðu verið í lífshættu. Mun verr hefði getað farið.

Sagðist ætla setjast að

$
0
0
Sagðist ætla að setjast að Brasilíumaðurinn Hosmany Ramos sem var á flótta undan réttvísinni þegar hann kom hingað til lands 9. september 2009 á vegabréfi bróður síns reyndi hvað hann gat til að lengja dvöl sína. Hann sótti um hæli og sagði ætlaðan tilgang ferðar sinnar að setjast hér að.

„Getur ekki talist sjálfsvörn

$
0
0
„Getur ekki talist sjálfsvörn“„Hvernig átökin byrja er engin leið að segja til um. En það sem eftir fylgir gengur fram úr öllu því sem væri að kalla sjálfsvörn. Mögulega í upphafi en það sem eftir fylgir getur ekki talist sjálfsvörn.“ Þetta segir Einar Guðberg Jónsson rannsóknarlögreglumaður um vettvang morðs í Dalshrauni.

Kræfir kortasvindlarar á ferli

$
0
0
Kræfir kortasvindlarar á ferli Lögregla höfuðborgarsvæðisins telur líklegt að í umferð sé tækjabúnaður sem notaður er til að færa upplýsingar af segulrönd greiðslukorta yfir á önnur kort. Slíkur búnaður getur nýst greiðslukortaþjófum og er þá nánast ógerningur fyrir afgreiðslufólk að sjá að um stolið kort sé að ræða.

Greinir á um þróunina

$
0
0
Greinir á um þróunina Lögreglu og Samtök verslunar og þjónustu greinir á um þróunina í búðaþjófnaðamálum. Lögregla geti aðeins byggt tölfræði sína á tilkynningum um þjófnaði en verslanir meti gjarnan út frá rýrnun. Því telja verslanir að aukningin sé gríðarleg en lögregla telur fjölda þjófnaðarbrota í jafnvægi.

Eins og glóandi hraun

$
0
0
Eins og glóandi hraunÍ nóvember 2004 kviknaði í geymsluskúr á svæði Hringrásar við Sundahöfn. Við hlið skúrsins voru nokkur tonn af hjólbörðum en eldurinn læsti sig fljótt í þeim. Í kjölfarið þurfti að rýma um 600 manns úr íbúðum við Kleppsveg. Fjallað er um þennan umfangsmesta bruna sem orðið hefur í Reykjavík í 112 í dag.

Með 400-500 þúsund í laun fyrir landasölu

$
0
0
Með 400-500 þúsund í laun fyrir landasöluÍ 112 í dag er skyggnst inn í heim bruggarans en heimildamönnum Mbl Sjónvarps ber saman um landasala hafi aukist gríðarlega eftir hrun. Í þættinum heyrum við sölu bruggara sem og lögreglumanns sem starfaði um árabil við að uppræta umfangsmikla bruggstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu.

Köstuðust út úr brennandi húsi

$
0
0
Köstuðust út úr brennandi húsi Tveir slökkviliðsmenn voru hætt komnir þegar kviknaði í gömlu timburhúsi við Klapparstíg í janúar 2009. Mennirnir fóru inn í húsið þar sem talið var að kona væri föst en fyrr en varði varð allt alelda í kringum þá. Fjallað er um þennan mikla bruna í þættinum 112 hér á MBL Sjónvarpi en rýma þurfti nærliggjandi hús.

Margt skrítið við þetta hrottalega mál

$
0
0
Margt skrítið við þetta hrottalega málÁrið 2006 var tilkynnt um hrottalega líkamsárás á vinnusvæði Kárahnjúka. Maður fannst í blóði sínu með mikla áverka á hálsi og höfði en hann sagði tvo menn hafa ráðist á sig. Um 500 manns unnu á þessu afskekkta svæði og því þótti líklegt að árásarmennirnir leyndust meðal þeirra.

Íslendingar bjarga börnum af eyðieyju

$
0
0
Íslendingar bjarga börnum af eyðieyju 56 manns björguðust giftusamlega eftir að hafa verið skilin eftir af óprúttnum mönnum sem sögðust ætla að flytja fólkið frá Tyrklandi til Ítalíu. 12 börn voru í hópnum og tvær ófrískar konur. Þau voru skilin eftir á stórgrýttri strönd og sagt að þau þyrftu aðeins að klífa eitt fjall til að vera komin á leiðarenda. Talið er nær fullvíst að fólkið hefði orðið úti ef ekki hefði borist hjálp úr óvæntri átt þegar Landhelgisgæsla Íslands fann fólkið í fjörunni.

Tilviljun réði að maðurinn var myrtur

$
0
0
Tilviljun réði að maðurinn var myrtur Lík karlmanns fannst við Víðimel í Reykjavík einn kaldan morgun í febrúar árið 2002. Maðurinn hafði verið á leið heim úr vinnu sinni skömmu eftir miðnætti og mætt ungum dreng sem var viti sínu fjær vegna fíkniefnaneyslu. Tilviljanakenndur fundur þeirra endaði með hrottalegu morði.

Björgunarafrek unnið á Suðurnesjum

$
0
0
Björgunarafrek unnið á Suðurnesjum Snemma morguns þann 19. desember barst neyðarkall frá flutningaskipinu Wilson Muuga en það hafði siglt á fullu stími upp í fjöruna í Hvalsnesi við Sandgerði. Danska varðskipið Tríton sendi átta menn á léttbátum að skipinu til að kanna aðstæður. Aðeins sjö þeirra snéru aftur um borð eftir giftusamlega björgun við erfiðar aðstæður.

112: Óttaslegnir foreldrar

$
0
0
112: Óttaslegnir foreldrarÁrið 1998 hóf lögreglan að rannsaka tilkynningar um að brotið hafi verið gegn 5-8 ára gömlum stúlkubörnum á tveggja ára tímabili. Foreldrar óttuðust mjög að senda börn sín út meðan maðurinn gekk laus einkum í Fossvoginum og í Breiðholtinu þar sem brotin höfðu verið framin. Lögreglan lagði allt kapp á að hafa hendur í hári gerandans.

Gamalt og gott: Eftirför endaði með bílveltu

$
0
0
Gamalt og gott: Eftirför endaði með bílveltu Lögreglan freistaði þess að stöðva jeppa sem ók greitt um götur borgarinnar og sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Bifreiðin ók á gríðarlegum hraða um mitt íbúðahverfi á tíma sem börn voru að leik. Eftirförin endaði með bílveltu.

Gamalt og gott: Hrein og klár aftaka

$
0
0
Gamalt og gott: Hrein og klár aftakaÞað var hræðileg sjón sem blasti við lögreglunni þegar hún var kölluð að íbúð við Hringbraut í Reykjavík í október árið 2007. Maður lá alblóðugur í rúmi sínu en honum virtist hafa verið ráðinn bani. Í þessum þætti af Löggum verður fjallað um rannsókn málsins og hvernig blóðferlagreining lögreglunnar leiddi til sakfellingar.

112: „Hrikalegustu aðstæður sem ég hef séð“

$
0
0
112: „Hrikalegustu aðstæður sem ég hef séð“„Ég óttaðist mest að fá skipið á móti mér af fullum þunga“, segir Viggó Sigurðsson sigmaður hjá Landhelgisgæslunni sem sótti slasaðan sjómann um 115 sjómílur undan ströndum Reykjaness í fyrra. Í þættinum 112 hér á MBL Sjónvarpi er fjallað um björgunina sem fór fram við mjög erfiðar aðstæður.

Logandi víti

$
0
0
Logandi víti Eldurinn sem kviknaði í verslunarhúsnæði við Fákafen sumarið 2002 logaði samfleytt í 46 klukkustundir og er sá bruni sem lengst hefur varað. Slökkviliðsmenn þurftu sannarlega að beita óvenjulegum aðferðum við að slökkva eldinn.

Ók ofurölvi með lögguna á hælunum

$
0
0
Ók ofurölvi með lögguna á hælunum Lögreglan fékk tilkynningu um einkennilegt aksturslag bifreiðar sem var á leiðinni frá Selfossi til Reykjavíkur. Ökumaðurinn ók greitt en hann reyndist ofurölvi.

Glíma hústökufólks og lögreglu

$
0
0
Glíma hústökufólks og lögreglu Hústakan á Vatnsstíg í apríl 2009 varð upphafið að sumri hústökufólks í Reykjavík. Þar kom saman fólk sem átti það sameiginlegt að vera í andstöðu við ríkisvaldið og þurfti það að glíma við á milli fjörutíu og fimmtíu lögreglumenn. Töluvert ber í milli eftir því hver lýsir atburðarrásinni þann dag.
Viewing all 106 articles
Browse latest View live